Sjón þín, hugsun þín, skilningur þinn…
…sjáðu bara
Bækurnar fjórar, þar af ein á ensku, innihalda hugleiðingar og heilræði sem sett eru upp í gamla sjónprófsforminu, sem allir krakkar og fullorðnir þekkja svo vel.
Höfundur bókanna er Svavar Guðmundsson er lögblindur og snillingur í að semja hnitna og skemmtilegan texta.
Framsetningin er hugsuð bæði til gagns og skemmtunar og ekki síst til að rækta tungumálið okkar. Með því að takast á við hvert og eitt sjónpróf eykur þú færni þína í að raða saman hugsun og skilningi við lestur.
Þetta eru skemmtilegar bækur um sjón, skynjun og skilning sem gaman er að eiga til að glugga í.
Hver bók kostar 6500 kr. hægt er að kaupa eintak með því að senda tölvupóst á sjonprof@gmail.com
Nálgast má bækurnar hjá Pingpong, Síðumúla 35, (gengið inn bak við húsið) 108 Reykjavík.
